Jæja gott fólk, þá er teitinu lokið og fór það fram sem hér
segir:
Húsið var opnað stundvíslega klukkan sjö með pompi og praktm og
voru þarna mættir fáir útvaldir ásamt öllum öðrum og hófst
borðhald á réttum tíma og fór vel fram, svo sem ekki mikið hægt að
segja frá því. En hljómsveitin utangarðsmenn afboðuðu sig á
síðustu stundu vegna þéttrar dagskráar Bubba Morthens, en það vildi
svo illa til að hann átti pantaðan tíma í klippingu og strípur
akkúrat á þessum tíma og var því miður ekki séns fyrir hann að fá
tímanum breytt. Það bjargaðist þó því Jón Torfi Gunnlaugsson
fyllti í skarðið en hann mætti á svæðið með blásturshljóðfærið
ukulele og söng svissneska alpasöngva af mikilli innlifun við
frábærar móttökur viðstaddra!
Nú, svo illa fór einnig að Ali G komst ekki vegna þess að hann
hafði verið að skemmta í Leirhöfn og hafði ekkert far en það kom
heldur ekki að sök því veislustjórinn Grétar Baldursson söng
gamanvísur á rúmensku við gríðarlega litla hrifningu
viðstaddra, en sögur segja að fólk hafi, þrátt fyrir vælið í
veislustjóranum, hrifist mjög af Sigurbirni Friðgeirssyni, en
hann lék undir á hörpu og gerði það einkar vel.
Nú, seinasta atriðið á dagskránni átti að vera live sex show þar
sem Atli Sveinn Jónsson og Indverska prinsessan Leoncie ætluðu að
eiga mök á stofugólfi Hrútakofans, en Atli Sveinn komst ekki vegna
illræmdrar sýkingar í endaþarmi og þvertók Leoncie fyrir að
taka þetta atriði með nokkrum öðrum en hönkinum Atla. Í
skarðið fyrir Atla hljóp hinn smái Snævar en í stað Leoncie kom
kópaskersbúinn Rúnsi. Þetta atriði var framkvæmt með mikilli
og augljósri gleði af báðum aðilum sem nutu sín mjög og herma
fregnir að fólk hafi verið svo hrifið að búið sé að bóka þá félaga
langt fram í tímann í brúðkaup og veislur um allt land og
vilja ég fyrir hönd Hrútanna óska þeim lukku og velfarnaðar á
vonandi löngum og farsælum ferli.
Eftir þetta hófst svo teitið sjálft og var það fremur fjölmennt
miðað við fjölda þeirra einstaklinga sem eftir eru, en mikið af
aðkomufólki lét sjá sig en það kom t.d. fólk frá húsavík,
raufarhöfn ásamt óboðnum gesti frá zimbabwe. Af fólki sem
stadd var á svæðinu má t.d. segja frá Tryggva þeim er oft er
kenndur við legó, en milli þess sem hann spilaði á gítar við góðar
undirtektir þá mallaði hann kakó ofan í viðstadda sem voru margir
hverjir ánægðir með framtakið. Frá Bjarka er það helst að
segja að hann gat ekki haldið skítugum krumlunum frá Leoncie við
litla hrifningu Andreu unnustu hans. Það vakti líka eftirtekt
að Salbjörg úr Kelduhverfi var svo oft "böstuð" við að brjóta
leikreglur böffaló leiksins að hún var búin að drekka þrjár
tunnur af bjór áður en hún yfirgaf svæðið. Óli Jón ráfaði
allt kvöldið nánast meðvitundarlaus milli viðstaddra rausandi
eitthvað um hvort þeir hefðu nokkurn tímann séð svona "massífa
bæseppa", og var það einróma mál manna að þetta væru með rosalegri
byssum sem sést hefðu á norðurlandi. Nú Páll frændi minn
vakti eftirtekt af tvennum ástæðum, fyrst vegna mikillar ölvunar og
í seinna lagi vegna þess að hann gisti í herbergi með tveimur
ónefndum stúlkukindum én ekki fylgir sögunni hvað fram fór í
herberginu. Maríus mætti einnig á svæðið en hann ætlaði upprunalega
ekki að mæta en kom þegar búið var að láta eftir kröfur hans, en
þær voru að ég myndi gefa honum einn bjór og að hann þyrfti ekki að
fara í sturtu. Sjálfur var ég að sjálfsögðu til fyrirmyndar í
allri hegðun og fasi og sá um að allt færi þarna sómasamlega
fram.
Nú ætla ég að láta þessari frásögn lokið í bili en ef eitthvað
fleira rifjast upp fyrir mér þá mun ég að sjálfsögðu bæta því við,
en hvet allta til að kommenta á þetta og jafnvel segja frá eigin
raunum og annara úr þessu partýi. OG SKRIFA Í GESTABÓKINA, til þess
er hún!!!
(Djöfull er ég svangur, ég vildi óska þess að ég hefði fattað að
fara í búðina í gær...)
Gleðihrúturinn