Hrútakofinn
Myndir Hrútanna
12.09.2006 16:33:03 / Hjörvar

Áríðandi tilkynning

Sú frétt fer nú sem eldur um sinu að endurvekja eigi stórveldið.
Höfuðstaður norð-austurlands hefur verið sveltur knattspyrnu, fallegum fótboltamönnum, partýum, almennum hálfvitagangi, einfætta sjóaranum, ítalska lookinu og hrútunum í heilt ár.
Hvað gerist þegar þeir snúa heim........
Fylgist með.......



» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 22:39:00 / Hjörvar

Úrslit síðustu kosningar

Alls tóku 61 þátt í þessari kosningu og verður það að teljast nokkuð gott bara. Heimsóknum hefur fjölgað örlítið en kommentin láta enn á sér standa.

Hér í den vorum við að fá yfir 40 komment á hverja grein. Stefnan er sett á að reyna að ná slíku aftur.

» 27 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 21:12:43 / Hjörvar

Nýjustu fréttir

Eins og staðan er í dag hafa eftirfarandi Hrútar staðfest það að þeir muni mæta á Skerið í sumar:
Hjörvar
Atli (James)
Svenkó

Einnig er það orðið nánast staðfest að Djarfi og Snævar koma ekki norður næsta sumar(90% líkur á því). Papa Bear er spurningamerki.

Uppi eru hugmyndir um það að recruit-a nýja Hrúata og myndu þeir þurfa að ganga í gegnum hinar ýmsu manndóms þrautir til að fá inngöngu. Þessar hugmyndir eru á byrjunarstigi og hafa ekki verið samþykktar ennþá. Jæja ok, mér var að detta þetta í hug núna og hef engum sagt fyrr en nú.
Ég bið þó áhugasama gaura að láta vita hér að neðan óski þeir þess að verða teknir til greina sem nýjir meðlimir komi til þessarar recruit-ar(pardon my ÍslEnsku).
Einnig er leitin hafin að nýjum Hrútakofa fyrir sumarið þar sem sá gamli hefur verið leigður út.
Fleiri fréttir bráðlega.

Kv. Hjörvar

» 14 hafa sagt sína skoðun

26.01.2006 22:40:59 / Hjörvar

Myndir af köllunum

Jæja, eins og ég sagðist ætla að gera að þá reddaði ég myndum af okkur félögunum og má nálgast þær hér til hliðar undir liðnum "Hrútarnir".
Eins eru þessar myndir og fleiri í myndasafninu undir "Myndir Hrútanna". Ég er að sanka að mér myndum héðan og þaðan. Þannig að ef þið eigið  einhverjar myndir af einhverjum okkar þá meigiði endilega senda mér þær á:

hjorvar@gmail.com

Allar myndir verða teknar til greina en þær svæsnustu verða ekki settar inn nema með leyfi þess sem myndin er af. Allar asnalegar og fyndnar myndir verða settar inn jafn óðum og þær berast, eða allavega því sem næst.

Kv. Hjörvar

» 18 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 23:04:23 / Hjörvar

Nýr liður

Hvet fólk til að skoða nýjan líð hér á síðunni  "...vikunnar". Endilega segið álit ykkar.



» 10 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 21:58:02 / Hjörvar

Ný skoðanakönnum

Ný skoðanakönnum komin, endilega takið þá og byrjið svo að kommenta eða kvitta í gestabókina þegar þið kíkið hérna inn og þá förum við að skrifa hér að staðaldri.

Kv. Hjörvar

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2006 21:46:22 / Hjörvar

Úrslit skoðanakönnuna:)


Þess ber að geta að 94 tóku þátt í þessari könnun.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 12:02:37 / Hjörvar

Ný nöfn meðlima

Flestir erum við félagarnir kallaðir einhverju örnefnum á borð við Keilan og Papa Bear. Ég var að velt fyrir mér að taka út hrútanöfnin og viðra þá hugmynd við menn að þeir notuðu frekar örnefnin sín í staðinn. Gaman væri ef þið gestir síðunnar kæmuð með hugmyndir að örnefnum á meðlimi hópsins. Hægt að henda inn skoðanakönnunum fyrir hvern og einn þegar nokkur nöfn eru komin í sarpinn.
Bara smá hugmynd.

Kv. Forystuhrúturinn (gríðarlega leiðinlegt að skrifa það btw)

» 71 hafa sagt sína skoðun

22.09.2005 22:41:32 / Hjörvar

Hrútar halda áfram í vetur!

Jæja, hrútar. Ég nenni ekki að vera alltaf að hringja í ykkur til að fá fréttir af ykkur, því legg ég til að við notum þennan miðil til að fylgjast með hver öðrum í vetur. Ákvað að viðra þessa hugmynd við ykkur. Hvað segiði?
Við getum opnað þetta með þvi að segja að Sauðurinn hefur haft gott af þessum búskap okkar í sumar því hann hefur verið nánast óstöðvandi á markaðnum síðan hann kom suður. Þó nokkrar ær liggja í valnum eftir litla kvikindið og er sjálfsagt von á fleirum í vetur.
Þetta var nú bara svona rétt til að koma okkur af stað.
Verum duglegir að láta vita af okkur hérna, ég sakna þess nefnilega gríðarlega að hafa ykkur ekki hérna í heimsóknarfæri.

Kv. Hjörvar Forystuhrútur

» 75 hafa sagt sína skoðun

25.08.2005 02:57:42 / Jónsi

Karlmaðurinn í hrútakofanum

Góða kveldið.

Margir hafa verið að velta því fyrir sér hvernig sambúð hrútakofans var háttað þetta sumar, og skal ég í það minnsta greina hér frá mínu hlutverki, og vill í leiðinni skora á hina hrútana að gera slíkt hið sama.

Nú, alltaf getur það komið fyrir, jafnvel hjá hörðustu hrútum, að heimurinn virðist ekki þola þá, einhvers konar tilfinningar bera þá ofurliði, eða þá að þeim er bara einfaldlega kalt.

Í svona tilfellum er gott að hafa einhvern klett í annars óstabílli tilveru, en þessi klettur þeirra þetta sumarið var nefnilega ég sjálfur, og eins og þessar myndir bera með sér: http://jonsi.myphotoalbum.com/view_album.php?page=1 (eða ef þessi linkur virkar ekki, þá skoða undir myndir, og smella á kúrumyndir) þá var það regla að ef að eitthvert var of mikið til að viðkomandi hrútur gæti þolað, þá var grátdýnan tekin fram og gleðihrúturinn tók viðkomandi hrút í faðm sér og huggaði, hughreysti eða kyssti á báttið, eftir því hvað við átti, og var þarna oft grátið fögrum tárum, þó svo að sjálfsögðu að hinir hrútarnir hafi séð um grátinn.

Nú ég er viss um að þó ég skrifi þennan pistil sjálfur, þá kunna hinir hrútarnir mér ævarandi þakkir fyrir þetta, þar sem ég er núna orðinn sem goð í þeirra augum, og ætla ég bara að nota tækifærið og þakka sjálfum mér fyrir þeirra hönd, og vill vitna í þessa setningu sem atli sagði: "´þú hlýtur bara að vera á einhverju, hvernig í ósköpunum er hægt að vera svona???".  En þarna var Atli að sjálfsögðu að vitna í það hversu frábær ég væri......

Gaman væri að heyra skoðanir fólks á þessu.....

Gleðihrúturinn


» 68 hafa sagt sína skoðun

21.08.2005 15:37:16 / Jónsi

PAAAARTYYY

Jæja gott fólk, þá er teitinu lokið og fór það fram sem hér segir:

Húsið var opnað stundvíslega klukkan sjö með pompi og praktm og voru þarna mættir fáir útvaldir ásamt öllum öðrum og hófst borðhald á réttum tíma og fór vel fram, svo sem ekki mikið hægt að segja frá því.  En hljómsveitin utangarðsmenn afboðuðu sig á síðustu stundu vegna þéttrar dagskráar Bubba Morthens, en það vildi svo illa til að hann átti pantaðan tíma í klippingu og strípur akkúrat á þessum tíma og var því miður ekki séns fyrir hann að fá tímanum breytt.  Það bjargaðist þó því Jón Torfi Gunnlaugsson fyllti í skarðið en hann mætti á svæðið með blásturshljóðfærið ukulele og söng svissneska alpasöngva af mikilli innlifun við frábærar móttökur viðstaddra!

Nú, svo illa fór einnig að Ali G komst ekki vegna þess að hann hafði verið að skemmta í Leirhöfn og hafði ekkert far en það kom heldur ekki að sök því veislustjórinn Grétar Baldursson söng gamanvísur á rúmensku við gríðarlega litla hrifningu viðstaddra, en sögur segja að fólk hafi, þrátt fyrir vælið í veislustjóranum, hrifist mjög af Sigurbirni Friðgeirssyni, en hann lék undir á hörpu og gerði það einkar vel. 

Nú, seinasta atriðið á dagskránni átti að vera live sex show þar sem Atli Sveinn Jónsson og Indverska prinsessan Leoncie ætluðu að eiga mök á stofugólfi Hrútakofans, en Atli Sveinn komst ekki vegna illræmdrar sýkingar í endaþarmi og þvertók Leoncie fyrir að taka þetta atriði með nokkrum öðrum en hönkinum Atla.  Í skarðið fyrir Atla hljóp hinn smái Snævar en í stað Leoncie kom kópaskersbúinn Rúnsi. Þetta atriði var framkvæmt með mikilli og augljósri gleði af báðum aðilum sem nutu sín mjög og herma fregnir að fólk hafi verið svo hrifið að búið sé að bóka þá félaga langt fram í tímann í brúðkaup og veislur um allt land og vilja ég fyrir hönd Hrútanna óska þeim lukku og velfarnaðar á vonandi löngum og farsælum ferli.

Eftir þetta hófst svo teitið sjálft og var það fremur fjölmennt miðað við fjölda þeirra einstaklinga sem eftir eru, en mikið af aðkomufólki lét sjá sig en það kom t.d. fólk frá húsavík, raufarhöfn ásamt óboðnum gesti frá zimbabwe.  Af fólki sem stadd var á svæðinu má t.d. segja frá Tryggva þeim er oft er kenndur við legó, en milli þess sem hann spilaði á gítar við góðar undirtektir þá mallaði hann kakó ofan í viðstadda sem voru margir hverjir ánægðir með framtakið.  Frá Bjarka er það helst að segja að hann gat ekki haldið skítugum krumlunum frá Leoncie við litla hrifningu Andreu unnustu hans.  Það vakti líka eftirtekt að Salbjörg úr Kelduhverfi var svo oft "böstuð" við að brjóta leikreglur böffaló leiksins að hún var búin að drekka þrjár tunnur af bjór áður en hún yfirgaf svæðið.  Óli Jón ráfaði allt kvöldið nánast meðvitundarlaus milli viðstaddra rausandi eitthvað um hvort þeir hefðu nokkurn tímann séð svona "massífa bæseppa", og var það einróma mál manna að þetta væru með rosalegri byssum sem sést hefðu á norðurlandi.  Nú Páll frændi minn vakti eftirtekt af tvennum ástæðum, fyrst vegna mikillar ölvunar og í seinna lagi vegna þess að hann gisti í herbergi með tveimur ónefndum stúlkukindum én ekki fylgir sögunni hvað fram fór í herberginu. Maríus mætti einnig á svæðið en hann ætlaði upprunalega ekki að mæta en kom þegar búið var að láta eftir kröfur hans, en þær voru að ég myndi gefa honum einn bjór og að hann þyrfti ekki að fara í sturtu.  Sjálfur var ég að sjálfsögðu til fyrirmyndar í allri hegðun og fasi og sá um að allt færi þarna sómasamlega fram.

Nú ætla ég að láta þessari frásögn lokið í bili en ef eitthvað fleira rifjast upp fyrir mér þá mun ég að sjálfsögðu bæta því við, en hvet allta til að kommenta á þetta og jafnvel segja frá eigin raunum og annara úr þessu partýi. OG SKRIFA Í GESTABÓKINA, til þess er hún!!!

(Djöfull er ég svangur, ég vildi óska þess að ég hefði fattað að fara í búðina í gær...)

Gleðihrúturinn


» 103 hafa sagt sína skoðun

19.08.2005 16:02:01 / Jónsi

Glens og gleði

Jæja, þar sem það virðist vera endanlega ljóst að ekkert verður úr fyrirhuguðu teiti í kelduhverfi á laugardag, þá virðist ekki annað í stöðunni en að Jón hinn Mikli aumki sig yfir partýþyrstan lýðinn!  Þar sem lokahófið verður ekkert fyrr en í byrjun september, þá mæli ég með að sem flestir sjái sér fært að mæta í hrútakofann laugardagskvöldið 20.ágúst!!

Húsið verður opnað stundvíslega klukkan 7 þar sem boðið verður upp á átta rétta máltíð að hætti hússins og hljómsveitin utangarðsmenn spila hugljúfa tóna meðan borðhald stendur.  Þá mun Ali G. vera með um klukkustundar uppistand og mun eflaust skemmta lýðnum.  Þá verður lokaatriði kvöldsins "live" sex show þar sem Atli Sveinn Jónsson og Leoncie munu eiga mök á stofugólfi Hrútakofans, og meðan á mökum stendur mun Leoncie flytja lög af nýjustu plötu sinni.  Eftir skemmtiatriði og borðhald munu gestir svo sjálfir sjá um að halda uppi stemmingu langt fram eftir nóttu!

ath. casjúal klæðnaður.

(athugið að dagskránni getur verið breytt án nokkurs fyrirvara)

Vonandi sjá sem allra flestir sér fært um að mæta í kofann og skemmta sér saman í síðasta skipti áður en sumarið er búið.

ALLIR Í HRÚTAKOFANN Á LAUGARDAG!!!!!

(æskilegt er að gestir komið með einn bjór ( eða eitt bjórígildi) handa gestgjafanum.

p.s. (það var einu sinni kerling og hún hét pálína, pálína-na-na-na, pála-pála-pálína.....)

Gleðihrúturinn


» 77 hafa sagt sína skoðun

11.08.2005 17:12:36 / Jónsi

Video

Jæja dömur mínar og herrar, langþráð myndbönd frá kanilátskeppninni eru komin inn en það er hámarksfjöldi hversu mörg er hægt að sækja á dag svo fólk sem kemur seinna en aðrir verður bara að bíða þolinmótt þar til röðin kemur að því!!!!

p.s. ekki eru ÖLL komin inn ennþá....


» 69 hafa sagt sína skoðun

11.08.2005 12:06:23 / Jónsi

Töfrinn

Fyrir þá sem eru að velta fyrir sér hvort þetta smávegis rifrildi milli Töfrans og Gleðihrútsins hefur haft einhverjar afleiðingar, má benda á þessa mynd af Töfranum sem tekin var kl. 2:30 aðfaranótt fimmtudags.....

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=118969


» 60 hafa sagt sína skoðun

10.08.2005 00:32:29 / Jónsi

Opna brúnarmótið í kaniláti

Undanfarnar vikur hefur staðið yfir í brún umtalaðasta mót norð-austurlands, en það mun vera opna brúnarmótið í kaniláti.  Helstu stjörnur kópaskers hafa ekki látið sitt eftir liggja og tóku þátt, þó svo einungis heimilismenn hafi átt rétt á verðlaunum, þá eru það einungis fáir útvaldir sem fá að taka þátt og hefur það lyft þeim mikið upp metorðastigann að hafa sést taka þátt í þessu stórmóti.

Reglurnar eru sem hér segir: 

Tekin er ein matskeið og hún fyllt af kanil.

Þessari matskeið er svo lyft upp að vörum þáttakandans og innihaldið innbyrt í einum bita/sopa.

Takmarkið er að kyngja innihaldinu á sem skemmstum tím en takist það ekki sigrar sá sem lengst getur haldið innihaldi skeiðarinnar uppi í munni sér.

15. júlí fóru fram tvö einvígi.

Í fyrra einvíginu það kvöldið áttust við Gleðihrúturinn Jón hinn Mikli, sem oft er kenndur við Turn og Töfrahrúturinn Atli hinn Blauði sem oftast er kallaður Keilan.

Fóru leikar þannig að Gleðihrúturinn Jón hinn Mikli, oft kenndur við Turn fór með nauman sigur af hólmi, en tímar verða birtir í lok þessarar greinar.

Seinna einvígi kvöldsins var milli Forystuhrútsins El Capitano sem stundum er kallaður Hjörvar, og Sauðsins Snævars hins Smáa.

Í fremur óspennandi einvígi fór svo að Sauðurinn Snævar hinn Smái fór með auðveldan sigur af hólmi.

Hinn 16.júlí kepptu tveir herramenn sem vildu auka áhrif sín í samfélaginu og voru það Elvar hinn Blauti sem atti kappi við Ágúst hinn Fríða.

Í hörkuspennandi einvígi fór Ágúst hinn Fríði með góðan baráttusigur og jók í leiðinni hróður sinn mjög í samfélagi hrútanna.

9.ágúst fóru svo fram lokaumferðin í þessari miklu keppni þar sem einn gestakeppandi skráði sig til leiks og tók þátt án nokkurs mótleikara, en það var Hrútspungurinn Ægir sem oft er kallaður einfaldlega Yxna.  Hann stóð sig með stakri prýði og hlaut í verðlaun fjóra árganga hins ágæta tímarits "Hús og Híbýli", árganga '85-'89 og kunnum við honum þakkir fyrir þátttökuna.

Lokaeinvígisins var beðið með mikilli eftirvæntingu og fór hún fram fyrir fullu húsi en í henni áttust við Tarfurinn Daníel "Lonely" Jóhansson, sem oft er kenndur við Trediu, og Drykkjuhrúturinn Sveinn hinn (Sí?)Ungi.

Fóru leikar Þannig að Daníel "lonely" Jóhannsson lék sér að mótherja sínum og hafði auðveldan sigur, enda karlmenni mikið á ferð.  Þess má geta að sagt hefur verið um Daníel að hann sé maður mikill að vexti, rammur að afli, hárprúður mjög, syndur sem selur og fimur til flestra verka.

En tímar og sæti eru eftir farandi:

6. sæti: Töfrahrúturinn Atli hinn Blauði : 3,7 sek.

5. sæti: Gleðihrúturinn Jón hinn Mikli:  7 sek.

4. sæti: Forystuhrúturinn El Capitano:  7,2 sek.

3. sæti: Drykkjuhrúturinn Sveinn hinn (Sí?)ungi:  9 sek.

2. sæti: Sauðurinn Snævar hinn Smái: 17,3 sek.

1. sæti: Tarfurinn Daníel "Lonely" Jóhannsson:  57!!! sek.

 

Eins og sjá má þá sigraði Tarfurinn Daníel "lonely" Jóhannsson með miklum yfirburðum og varð þar með fyrsti maðurinn í vorri veröld sem getur réttilega titlað sig Brúnarmeistara í kaniláti! (Einnig má veita eftirtekt óvenju lélegs tíma Töfrahrútsins Atla hins Blauða).

Gestir voru með eftirfarandi tíma:

Hrútspungurinn Ægir "Yxna": 12,5 sek.

Elvar hinn Blauti: 7 sek.

Ágúst hinn Fríði:  9,5 sek.

 

Að lokum vonumst við hrútarnir til að upptökur frá atburðunum komist sem fyrst fyrir sjónir almennings, en verið er að vinna í þeim málum í þessum töluðu orðum. Einnig þökkum við kærlega fyrir okkur og munum taka við skráningu í næsta mót fljótlega.

 

Takk fyrir.

Hrútarnir

 

p.s. Mamma ég sakna þín!!!


» 72 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2